30.5.2008 | 16:40
Ég spyr... Veit ekki Ingibjörg hverjir eru í Gvantanamó.??? Vill hún fá þá hingað eða vill einhver þjóð taka við þessum mönnum.
Ég leyfi mér að segja þessu fólki. Þessir menn í Gvantanamó hafa það ekki eins gott og afbrotamenn á LitlaHrauni en þeir hafa læknaþjónustu og hollan mat. Góðar vistarverur og ómengað andrúmsloft með þægilegu hitastigi. Hefðu þeir lent í fangelsi í austurlöndum nær þá væru þeir ekki á lífi. Það sem Ingibjörg gerði væri sama og við afhentum Páfa kvörtunarbréf ít af máli síðan 1200AD. Þetta er orðin gömul tugga og ætti ekki að ræða um meir. Ég vona að Ingibjörg taka ekki þessa fanga inn á Litlahran.
|
Rice tók ásakanir um mannréttindabrot óstinnt upp |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Skolli
Ert þú á móti inngöngu í ESB.
ESB !!! ESB!! Ert þú á móti inngöngu í ESB.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 500
- Frá upphafi: 65465
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 351
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


benediktae
gattin
eeelle
fornleifur
bofs
skodun
heimssyn
jogamagg
johanneliasson
jonvalurjensson
loopman
magnusthor
vertinn
samstada-thjodar
fullvalda
vogin
sigurgeirorri
vefritid
thjodarheidur





Athugasemdir
Þú lítur alveg framhjá pyntingum og öðrum villimannslegum meðförum á þessum föngum, sem njóta engra mannréttinda og hafa ekki fengið tækifæri til að fá réttláta málsmeðferð heldur sitja læstir inni í búri í algjörri óvissu með framtíð sína.
Það að senda páfa kvörtunarbréf út af einhverju sem gerðist árið 1200 er fáránleg líking við það að mótmæla einhverju sem fer fram í DAG og mun halda áfram þangað til Bush lætur af embætti eftir nokkra mánuði, gefið að McCain muni ekki svindla sér leiðina inn í hvíta húsið eins og Bush gerði. Það að eitthvað sé gömul tugga þýðir ekki að það eigi að hætta að tala um það. Ég veit ekki hvar heimurinn væri ef allir hugsuðu svona.
Brynjar (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 17:27
Þú heldur semsagt að allir þessir menn séu sekir? Engin fá þeir þó réttarhöldin.
Ellý, 30.5.2008 kl. 18:37
Vitið þið það.Ég veit ekki hve sekir þessir menn ferkar em margir sem sitja í fangelsi hvar sem er. Ég veit þeir hafa það betra en í mörgum fangelsum t.d í suður Ameríku og annarstaðar. Þeir hafa meiri vernd gagnvart öðrum föngum en fangar í sjálfri ameríku. Þeir fá örugglega betri og hollari mat en fangar á LitlaHrauni. Hversvegna fer ekki fólk að horfa á önnur fangelsi í heiminum. Hér eru tíu verstu fangelsi í heiminum. Ég vara viðkvæmu fólki að lesa þetta. http://www.askmen.com/toys/top_10_100/141_top_10_list.html
Valdimar Samúelsson, 30.5.2008 kl. 20:34
"Saklaus uns sekt er sönnuð" ... hefurðu heyrt það?
Þetta hér er tekið af Wikipedia, sem er ekki alfræðirit en hér eru linkar í ákveðin ummæli og segðu mér þá... hvað finnst þér um þetta:
"In June 2006, U.S. Senator Arlen Specter stated that the arrests of most of the roughly 500 prisoners held there were based on "the flimsiest sort of hearsay".[64]In September 2006, the UK's Lord Chancellor, Lord Falconer, who heads the UK's legal system, went further than previous British government statements, condemning the existence of the camp as a "shocking affront to democracy". Lord Falconer, who said he was expressing Government policy, made the comments in a lecture at the Supreme Court of New South Wales.[65] According to former U.S. Secretary of State Colin Powell: "Essentially, we have shaken the belief the world had in America's justice system by keeping a place like Guantanamo open and creating things like the military commission. We don't need it and it is causing us far more damage than any good we get for it,""
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 20:38
Ég spyr þá, því vilja ekki þjóðir eða bjóðast þær ekki til að taka við þessum föngum. Ég hef ekki áhyggjur meðan þeir eru lokaðir inni.
Valdimar Samúelsson, 30.5.2008 kl. 21:31
Þetta eru ólíkindaskrif hjá þér Valdimar. Hvers vegna hefðirðu áhyggjur, væru þessir menn ekki lokaðir inni?
Veizt þú til þess að heimaþjóðir þessarra manna hafi raunverulega ekki boðizt til þess að taka þá heim? Hefurðu heimildir fyrir því?
Það hefur sem betur fer nokkrum þeirra verið sleppt, án þess að þeir hafi fengið neina afsökunarbeiðni eða skaðabætur fyrir að hafa verið pyntaðir og þeim haldið föngnum án dóms og laga í mörg ár. Geturðu stutt slíkt?
Þú segir: ,,Góðar vistarverur og ómengað andrúmsloft með þægilegu hitastigi." Hvað hefurðu fyrir þér í því að þarna sé ómengað andrúmsloft og þægilegt hitastig? Eru búr þægilegar vistarverur í þínum huga? Skv. myndum sem sýndar hafa verið þaðan (og þær eru ekki margar), eru menn hafðir í vistarverum sem við myndum ekki bjóða hundum!
Að lokum: Finnst þér virkilega allt í lagi og fínt að handtaka menn víða um heim, halda þeim í búrum og pynta þá, án þess nokkurn tímann að halda yfir þeim réttarhöld? Ef svo er, færir þú ekki eftir Genfarsáttmálanum eða mannréttindasáttmála S.Þ. Þú getur rétt ímyndað þér hversu rétt þú hafir fyrir þér...
Sigurjón, 31.5.2008 kl. 00:46
...og já: Hverjir eru svo í Guantánamo? Getur þú uppfrætt okkur um það?
Sigurjón, 31.5.2008 kl. 00:47
Fyrst við getum ekki miðað vistarverur við Ísland, er það hér eru flatskjáir og öll heimsins þægindi. Vistverur eru staðlaðar fyrir fangelsi í Bandaríkjum. Þar er engin sóðaskapur. Fangarnir sjálfir vinna við þrif. Ég reikna með að þessir stríðsfangar af múslíma trú geri það ekki.
Varðandi andrúmsloft ég hef verið þarna og unnið í þessu landi eins og mörgum öðrum löndum. Þetta eru stríðsfangar sem hafa jafnvel ekkert þjóðerni. Bush hefir boðið þjóðum að taka við þeim. Þeir yrðu að gafa sjóleiðina náttúrulega það sem þjóðir hrópa yfir flugflutningum á föngum.
Að lokum mér finnst í lagi í þessum terróristaheimi sem hefir verið undanfarna ára tugi að handtaka hvern sem er sem sínir einhver merki um terrórista annað væri aumingjaskapur stjórnvalda. Sjáðu það eru terróristar og meintir í mörgum öðrum fangelsum um allan heim og ekkert talað um þá. Því fer allt í kerfi út af Gvantanómó. Mest af þessum mönnum eru nafnlausir í þeirri merkingu. Lestu skírsluna sem Rice ætlar að senda þingheiminum.
Það væri veik von ef að fólk geti barist saman gegn terróristum en fyrirleitt byrja samtök að berjast gegn þeim sem berjast gegn þessum hryðjuverkamönnum. Þetta er meinið.
Valdimar Samúelsson, 31.5.2008 kl. 09:12
Það vill svo til að ég hef líka verið á Kúbu og þar er jafnan heitt og mollulegt. Það væri ekki talið hollt að vera læstur í búri utan dyra við slíkar aðstæður.
Að sjálfsögðu vinna þessir ,,stríðsfangar af múslima trú" ekki við þrif, því þeim er haldið sem skepnum í búrum og hafa engin mannréttindi. Það er meinið. Það er algjörlega andstætt minni siðferðiskennd að hægt sé að handtaka menn, ásaka þá um að vera hryðjuverkamenn, pynta þá til sagna og aldrei halda yfir þeim hlutlaus réttarhöld. Svo jafnvel sleppa þeim án þess nokkurn tímann að hafa ákært þá, hvað þá biðjast afsökunar á ,,mistökunum"...
Ég spurði nokkurra spurninga hér ofan sem ég hef ekki fengið svör við. Þú nefnir auk þess engar heimildir máli þínu til stuðnings.
Sigurjón, 31.5.2008 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.